Fagrástefna skógræktar 2012.

Árleg fagráðstefna skógræktar verður nú haldin á Fosshóteli,  Húsavík í S-Þingeyjarsýslu  dagana 27.-29. mars nk. 
Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er Tegundir, kvæmi og klónar í íslenskri skógrækt.

Allar upplýsingar skráningu og dagskrá ráðstefnunnar er að finna á heimasíðu Skógræktar ríkisins http://www.skogur.is/fagradstefna2012

 

Minnkaður opnunartími hjá Skjólskógum á Vestfjörðum 2012.5.1.2012

Vegna niðurskurðar fjárveitinga til Skjólskóga undanfarin ár þurfa Skjólskógar að draga úr föstum rekstrarkostnaði ársins 2012. Þetta er m.a. gert með því að lækka starfshlutfall starfsmanna tímabundið úr 100 % í 90 %. frá og með janúar 2012

Í framhaldi af  þessu er ákveðið er að opnunartími skrifstofu Skjólskóga og viðverutími starfsmanna styttist sem þessu nemur og verður skrifstofan því lokuð alla föstudaga í  janúar, febrúar, mars og apríl.

Frá og með maí og fram eftir hausti verður skrifstofan aftur opin alla virka daga að frátaldri sumarlokun í hluta júlí og ágúst, nánar um það síðar.

Með þessu fyrirkomulagi er vonast til að ekki verði skerðing á hefðbundinni þjónustu við skógarbændur á vori og sumri komanda.

Viðskiptavinir og samstarfsaðilar eru beðnir að taka tillit til þessa.

Sæmundur Kr. Þorvaldsson
Framkvæmdastjóri.

 

 

 

Uppgjör til skógarbænda. 20.10.2011

Nú standa yfir útreikningar á uppjörum til skógarbænda vegna framkvæmda síðastliðið sumar.

Því miður verða greiðslur á grundvelli uppgjara síðar ferðinni en oft áður vegna þröngs fjárhags, en vonandi verður hægt að gera skil á öllum framlögum fyrir miðjan nóvember.

Bændur eru beðnir um að hafa biðlund en einn hefur þegar látið í sér heira um málið og sendi okkur þessa vísu: 
 

Er nú kominn október
sé ekki á borgun bóla
Biðlund hefur brugðist mér
ég bíð ei fram til jóla

       
     Höf. Snúður og Snælda

 

Heimsins græna gull. 13.10.2011

Laugardaginn 22. október verður haldin alþjóðleg ráðstefna um ástan og horfur skóga heimsins. Ráðstefnan verður í Kaldalóni í tónlistar-og ráðstefnuhúsinu Hörpu og mun standa frá 10:30 til 17:00.
Um er að ræða alþjólega ráðstefnu sem allur skógræktargeirinn á Íslandi stendur fyrir á alþjóðlegu ári skóga.
Nánari upplýsingar, skráningu og dagskrá ma finna á  síðu ráðstefnunnar.

Aðalfundur Landsamtaka skógareigenda. 8.9.2011

Aðalfundur Landsamtaka skógareigenda verður haldin dagana 7. og 8. október að Eiðum á Héraði. Fundurinn hefst kl. 17:00 á Föstudagin 7. og lýkur með árshátíð skógarbænda á laugardagskvöldið.
Allar frekari upplýsingar má finna á vef Landsamtaka skógareigenda

 

Grænni skógar I. 2.9.2011

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í skógræktarnám í grænni skógum I. Námskeiðið er nú í boði fyrir skógræktendur á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum. Kennt verður á Reykjum í Ölfusi og að Hvanneyri.
Upplýsingar um námskeiðið má finna hér. Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðið er í höndum Sæmundar hér á Skjólskógum í síma 456-8201 eða skjolskogar@skjolskogar.is .  Skráningarfrestur er til 12. september 2011.

Óværa í trjám og gróðri 26.8.2011

Í nokkra daga hafa góðir gestir verið á ferð um Vestfirði til að afla sér upplýsinga um viðgang skordýra af ýmsu tagi í trjám og öðrum gróðri.

Þetta var þver-stofnanalegur hópur sérfræðinga frá Landgræðslunni, Landbúnaðarháskóla og Rannskóknarstöð skógræktar á Mógilsá.

Það er hels að frétta af athugun þeirra að nú virðist lirfa birkifetans  (Rheumaptera hastata) vera í aðalhlutverki í berjalynginu en mófetalirfa (Eupithecia satyrata) situr einnig að snæðingi í talsverðum mæli.

Sérstaka athygli vekur að mófetinn er að gera verulegan skurk í lúpínubreiðum að þessu sinni og þótt ertuygla  (Melanchra pisi eða Ceramica pisi) sé þekkt að því er hún ekki til staðar hér um slóðir a.m.k ennþá þá virðist mófetinn geta gert sama skaða – eða gagn.

Mófetinn fannst einnig við snæðing í skógarkerfilsbreiðum inni í lúpínunni en líklega er hann of seint á ferð hvert sumar til að gera þar mikinn skurk. Mófeti fannst í einhverjum mæli á barrtrjám en ekki til stórs skaða þar sem skoðað var. Mófeti hefur verið ansi ásækin í vestfirskan gróður undanfarin ár eins og kemur fram í ársskýrslu skjólskóga 2010  og virðist hann vera að bæta við matseðil sinn ár hvert.


Mynd 1. Halldór og Guðmundur líta yfir sviðið af Brekkuhálsi, handan
fjarðar blasa við lúpínubreiður á Höfða og ljósu flekkirnir sem sjá má í
lúpínubreiðunum eru afleiðing þungrar beitar mófeta síðustu vikurnar.


Mynd 2. Litur mófetalirfunnar er breytilegur, hér ert tvær á lúpínublaði.


Mynd 3. Mófetalirfa á skógarkerfli.


Mynd 2. Sérfræðingarnir í kurteisisheimsókn hjá Skjólskógum:
Frá vinstri: Guðmundur Halldórsson rannsóknarstjóri Landgræðsur ríkisins,
Edda S. Oddsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknarstöð skógræktar Mógilsá,
Halldór Sverrisson lektor / plöntusjúkdómafræðingur við Landbúnaðarháskóla Íslands,
Brynja Hrafnkellsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknarstöð skógræktar Mógilsá og
Kristján Jónsson fjölfræðingur hjá  Skjólskógum á Vestfjörðum

 

 

Trjávöxtur góður á Vestfjörðum í sumar 16.8.2011

Þótt vorinu 2011 verði tæpast minnst sem hlýju vori verður ekki annað sagt en að góðviðri og hlýindi einkum í júlímánuði hafi gagnast trjágróðri vel á Vestfjörðum. Engar tiltakanlegar skemmdir urðu vagna vorkulda en tré voru lengi að hefja vöxt.

Liðlega 311.000 skógarplöntum var plantað af skógarbændum á starfssvæði Skjólskóga þetta sumarið en nokkur vandamál hafa verið í nýgróðursetningum vegna þurrka og viðbúið að skakkaföll séu þar nokkur.

Á dögunum var brugðið mælistiku á nokkur hæstu tré Vestfjarða til að fylgjast með hæðarmetum líkt og starfsmenn Skjólskóga hafa gert af og til frá aldamótum.

Um aldamótin reyndist hæsta tré Vestfjarða standa í skógreit í Barmahlíð í Reykhólasveit. Þetta er sitkagreni sem er gróðursett á áraunum 1946-49.

Árið 2000 var tréð 14,2 m. á hæð og fyrir viku síðan voru skógfræðinemar frá Hvanneyri þar á ferð og brugðu máli á tréð sem nú reyndist vera 18,3 m. á hæð.

Á 11 árum hefur það hækkað um 401 cm. eða 36 cm á ári að jafnaði. Þetta tré heldur enn sessi sínum sem hæsta tré Vestfjarða og allmörg tré í sama lundi eru litlu lægri.


Mynd 1. Fyrr&Nú: Sitkagreniteigurinn í Barmahlíð í Reykhólasveit; tv. 1980. th 2002.

Hæsta öspin á Vestfjörðum sem starfsmönnum Skjólskóga er kunnugt um stendur í húsagarði í Haukadal í Dýrafirði (Miðbær). Tréð var hæðarmælt um síðustu aldamót og var þá 11,45m, en þessi ösp var gróðursett sem u.þ.b. meters há planta árið 1974.

Nú er þetta sama tré 17,4m. og hefur hækkað um 6m á 12 árum eða 50cm á ári að jafnaði.

 
Mynd 2. Alaskaösp í Haukadal Dýrafirði í ágúst 2011

Ef svo fer fram sem horfir má reikna með að 20 metra trjáhæðar markinu verði náð á Vestfjörðum á næstu 4-6 árum, og þar með tekin stefna á 30 metrana.

Líklega væri ein aspanna sem stóð í Simmsonsgarði í Tungudal við Sutulsfjörð orðin methæðar-tré núna en hún mældist um 14m þar sem hún lág brotin eftir snjóflóðið í apríl 1994.

 

Hvernig væri að skógarbændur sendu okkur ábendingar um tré sem gætu „staðið upp úr“ ef svo má segja, og þá fyrir hverja trjátegun. Svo getur farið fram árleg keppni um hæstu tré hverrar tegundar. Notast má við einfaldan hæðarmælir til að fá sæmilega hugmynd um hæð trjáa þótt hún sé ekki nákvæm. Sjá myndir:

Mynd 3. Einfaldur trjámælir og einföld trjámæling.

Einfaldur hæðarmælir.
Spíta ca 50 cm löng með skarði (A-B) sem er 10% lengdar milli punkta A og C.

Þegar málstokkurinn er borinn upp þannig að punkt A ber við rótarháls og punkt C ber við trjátopp, ber punkt B við þann stað á trjástofni sem er 10% af hæð trésins.

Heildarhæð = cm milli A og B á trjástofni X 10.

 

 

Rannsóknarstyrkur veittur.

 Vaxtasamningur Vestfjarða hefur veitt Lilju Magnúsdóttur skógfræðingi og skógarbónda í Tálknafirði styrk til rannsókna í meistarnámi sínu í skógfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri

Rannsóknin er unnin í samstarfi við Skjólskóga á Vestfjörðum og önnur landshluta-verkefni í skógrækt.

Marmið rannsóknarinnar er að leiða í ljós hvernig til hefur tekist með að uppfylla lagalegt hlutverk landshlutaverkefna í skógrækt um eflingu atvinnulífs á starfssvæðum þeirra.

Rannsóknin tekur til síðustu 10 ára og miðar að því að reikna út fjölda beinna og afleiddra starfa sem skapast við skógrækt.

Uppbygging í skógrækt á Vestfjörðum hefur nú þegar búið til störf í skógrækt á starfssvæði Skjólskóga á Vestfjörðum og því er mikilvægt fyrir verkefnið að fá óháðar upplýsingar um hversu mörg þau störf eru til að geta þannig fært rök fyrir fjárveitingum til verkefnisins. Skógrækt á Vestfjörðum sem og annars staðar á landinu er framtíðaratvinnugrein sem enn á sér stutta sögu og því eru allar rannsóknir sem tryggt geta vöxt og viðgang þessarar ungu atvinnugreinar mjög mikilvægar. Upplýsingar úr  þessari rannsókn munu nýtast við áætlanagerð hjá Skjólskógum á Vestfjörðum og hjá bændum og við ráðstöfun fjármuna hjá Skjólskógum á Vestfjörðum og hjá ríkisvaldinu. Þannig munu niðurstöður rannsóknarinnar stuðla að bættri nýtingu fjármuna og leggja grunn að framtíðaratvinnugrein, skógrækt á Vestfjörðum.

Þessi styrkveiting Vaxtarsamnings Vestfjarða er því mikilvæg viðurkenning á skógrækt sem atveinnugrein á Vestfjörðum.

 

Frá undirritun samnings um rannsóknarstyrkinn 4. ágúst.
Til hægri: Lilja Magnúsdóttir, tv. Shiran Þórisson hjá Vaxtarsamningi Vestfjarða 

Ljósm. Atvest.

 

 

Starfsmenn farnir í sumarfrí.

Frá og með mánudegi 11. júlí til og fram yfir verslunarmannahelgi er skrifstofa Skjólskóga á Þingeyri lokuð vegna sumarleyfa starfsmanna.

Erindum sendum á skjolskogar@skjolskogar.is verður svarað eftir föngum og eins má ná sambandi við framkvæmdarstjóra í síma 893-1065 ef mikið liggur við.

 

Grænni skógar I á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum. 10.6.2011

Grænni skógar er námskeiðaröð í skógrækt ætlað fróðleiksfúsum skógarbændum og áhugasömum skógræktendum sem vilja auka þekkingu sína og ná betri árangri í skóg- og trjáræktinni. Námskeiðaröðin stendur yfir í þrjú ár (sex annir) og inniheldur hún 16 námskeið sem fjalla um mörg af grunnatriðum skógræktar m.a. um val á trjátegundum, undirbúning lands fyrir skógrækt, uppeldi og gróðursetningu skógarplantna, skógarumhirðu, skjólbelti, svo eitthvað sé nefnt. Haldin eru 2-3 námskeið á önn. Hver önn kostar 43.000 kr. (tvær annir á ári). Mörg stéttarfélög styrkja nemendur á námskeiðaröðinni. Sett verður af stað ein sameiginleg námskeiðaröð fyrir þessa þrjá landshluta ef næg þátttaka næst. Kennt verður á Reykjum í Ölfusi og að Hvanneyri.

Hvert námskeið tekur tvo daga og er þá kennt frá kl. 16:00 til 19:00 á föstudegi og frá kl. 09:00 til 16:00 á laugardegi.

Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu má finna hér.

 

 

althjodlegt_ar_skoga_2011_logo

Alþjóðlegt ár skóga 2011.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna lýsir árið 2011 „Alþjóðlegt ár skóga” sem lið í að fylgja eftir áherslum og yfirlýsingum, allt frá ráðstefnunni um umhverfi og þróun í Ríó árið 1992.

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, setti árið formlega hér á landi þann 12. janúar og fékk við það tækifæri afhentan fána með íslenskri útfærslu á merki ársins.
Það er verkefni allra sem vinna undir merki ársins að stuðla að aukinni vitund fólks um mikilvægi sjálfbærrar umhirðu allra skógargerða, til hagsbóta fyrir framtíðina. Þótt einkum sé litið svo á að átakið sé til hagsbóta fyrir núlifandi og óbornar kynslóðir þá er sérstök áhersla á vernd viðkvæmra skógarvistkerfa. Þá minnir Allsherjarþing SÞ á samninginn um líffræðilega fjölbreytni, loftslagssáttmála Sameinuðu þjóðanna, samninginn um varnir gegn myndun eyðimarka og aðra samninga sem máli skipta og fást við flókin úrlausnarefni er varða skóga.

Merki (logo) ársins er hannað um þemað „þetta gerir skógurinn fyrir þig” og undirstrikarað allir skógar hafa fjölþætt gildi, m.a.:

Allsherjarþingið telur að samtillt átak þurfi á öllum sviðum til að auka vitund og styrkja sjálfbæra umhirðu, vernd og sjálfbæra þróun allra skógargerða. Skorað er á ríkisstjórnir, svæðisbundnar stofnanir og helstu hópa að styðja viðburði sem tengjast árinu, meðal annars með frjálsum framlögum, og með því að tengja viðburði á sínum vegum við árið.

 

Ný stjórn Skjólskóga 18.5.2011

Landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason hefur skipað nýja stjórn fyrir Skjólskóga á Vestfjörðum frá 1. maí 2011 til 30. apríl 2015.

Stjórnina skipa:

Ø  Viktoria Rán Ólafsdóttir, Hólmavík    formaður

Ø  Jóhann Björn Arngrímsson, Hólmavík (Tilnefndur af Félagi skógarbænda á Vestfjörðum)

Ø  Þorbergur Hjalti Jónsson, Reykjavík   (Tilnefndur af Skógrækt ríkisins)

 

 

Úttekt á árangri gróðursetninga 2000-2009

Haustin 2007 og 2009 voru gerðar úttektir á 7 jörðum á starfsvæði Skjólskóga á Vestfjörðum. Tilgangur úttektanna er  að kanna þann árangur sem orðið hefur við skógræktarframkvæmdir á þessum jörðum og hvort einhverjar aðgerðir eru nausynlegar til þess að skógarnir verði eins og að var stefnt. Niðurstöður þessara úttekta hafa verið dregnar saman í eina skýrslu sem finna má hér og undir liðnum ýmsar greinar.
 

 

 

Íslenska skógarauðlindin - skógur tækifæra 4.4.2011

Tímamótaráðstefna tengd Alþjóðlegu ári skóga á Íslandi 2011

Ráðstefnan verður haldin á Radisson Blu Hótel Sögu fimmtudaginn 28. apríl frá kl. 08:00 - 17:00.
Ráðstefnan ber yfirskriftina Íslenska skógarauðlindin - skógur tækifæra og er markmiðið að gera
keðjuna frá framleiðenda til markaðar skilvirkari og skýrari.

Nánari upplýsingar og skráning .

 

Gríðarlega vel heppnuð fagráðstefna í Reykjanesi. 31.3.2011

Fagráðstefnan skógræktarinna 2011 sem haldin var í Reykjanesi við djúp 23.-25. mars var vel sótt og þótti einstaklega vel heppnuð!  Flutt voru áhugaverð og fróðleg erindi auk þess sem aðstaðan í Reykjarnesi er frábær, flottur matur og roslega fínn og stór heitur pottur/sundlaug.
Ráðstefnan sjálf  varði í tvo daga en miðvikudagskvöld fyrir ráðstefnu var nýtt til fundarhalda nokurra  hópa og félaga er tengjast skógrækt. 
Fimmtudagurinn var þemadagur og fjölluðu erindi dagsins  um sitkagreni annarsvegar og birki hinsvegar. Eftir flutning erinda var farin hópferð í skógin að Laugarbóli við Ísafjörð þar sem gaf að sjá einu ræktun skógræktar ríkisins á Vestfjörðum. Erindi föstudagsins voru af ýmsu tagi um fjölda atriða er snerta skógrækt.
Fyrirlestrar ráðstefnunnar eru kominr á veraldarvefinn og má finna þá á vef Skógræktar ríkisins. Hver fyrirlestur er á PDF formi aftan við viðkomandi erindi.

 


Ráðstefnugestir fylgjast andaktugir með áhugaverðu fræðsluerindi.  Mynd. Björgvin Eggertsson

 

 

 

Fagráðstefna skógræktar 23.-25. mars 2010.

Eins og áður hefur verið auglýst verður fagráðstefna skógræktar verður  haldin í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp dagana 23.-25. mars nk.
Nú er dagskrá ráðstefnunar klár og má finna hana hér.

Hvetjum allar áhugasama til að skrá sig hjá Sæmundi annað hvort með tölvupósti skjolskogar@skjolskogar.is eða í síma 456-8201

 

 

Starfsmenn á námskeið. 25.2.2011

Næstkomandi viku 28. feb - 4.mars. verða starfsmenn skjólkskóga á námskeiði hjá frændum vorum Dönum þar sem þeir munu verða "uppfærðir" eða fræddir um allt það nýjasta á sviði skógræktar.  Þar af leiðir augljóslega mun engin verða við á skrifstofu Skjólskóga. Ekki verður þó um algert sambandsleysi að ræða og er hægt að koma erindum á framfæri um tölvupóst skjolskogar@skjolskogar.is og einnig er hægt að ná í Sæmund í síma 8931065 ef um bráðatilfelli er að ræða.

 

 

Fagráðstefna skógræktar 23.-25. mars 2011

Árleg  fagráðstefna skógræktar verður nú haldin í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp dagana 23.-25. mars nk.
Ráðstefnan hefst með afhendingu ráðstefnugagna  frá 17:00-19:00 miðvikudaginn 23. mars.  Dagskrá ráðstefnunar hefst kl.9:00 fimtudaginn 24. mars.
Skipuleggjendur ráðstefnunnar eru:

    Skjólskógar á Vestfjörðum: Sæmundur Kr. Þorvaldsson

    Rannsóknarstöð skógræktar á Mógilsá og Skógfræðingafélag Íslands: Aðalsteinn Sigurgeirsson.

    Skógræktarfélag Íslands: Einar Gunnarsson

    Landbúnaðrháskóli Íslands: Bjarni D. Sigurðsson


Skráning á ráðstefnuna fer fram hjá Sæmundi  til 15. mars. Hægt er að ná sambandi við hann í síma (456-8201/893-1065) eða senda tölvupóst (skjolskogar@skjolskogar.is).

    Nánari upplýsingar og drög að dagskrá má finna hér
 

 

Fækkun starfsfólks skjólskóga. 28.12.2011

Starfsmönnum Skjólskóga á Vestfjörðum hefur nú fækkað um einn. Þetta er vegna lækkunar á fjárveitingu til Skjólskóga og viðvarandi samdrætti í starfsem af þeim sökum.

Stjórn ákvað að segja Arnlíni Óladóttur upp störfum og lét hún af störfum um síðustu áramót. Þetta er að sjálfsögðu áfalla enda hefur Arnlín starfað fyrir Skjólskóga allt frá fyrstu hugmyndum um verkefnið á árinu 1996 í 66 – 80% starfshlutfalli.

 

Frumvarp um breytingu á náttúruverndarlögum. 12.1.2011

Umhverfisraðuneytið hefur auglýst á vefsíðu sinni drög að breytingum á náttúruverndarlögum. Þessar tillögur liggja fyrir á vef umhverfisráðuneytisins sem nálgast má hér. Einnig er hægt að sjá pdf skjal með tillögunum hér.
Öllum er heimilt að senda umhverfisráðuneytinu athugasemdir við drögin og er búið að framlengja frest til að gera athugasemdir til 21. janúar.
Skjólskógar hafa sent inn umsög við frumvarpsdrögin og hér má lesa þær athugasemdir.
 

BS verkefni nýutskrifaðra skógfræðinga. 21.11.2010

Ein og fram kom á þessari síðu þann 8.6. síðastliðinn, útskrifuðust 3 vestfirðingar  með Bs gráðu í skógfræði sl. vor.
Nú hafa lokaverkefni þess skógfræðinga ratað hér á vefinn, er það að sjálfsögðu gert með vitund og samþykki fræðinganna.
Finna má ritgerðir þessar undir liðnum Ýmsar greinar í vinstri spássíu.

 

 

Aðalfundur LSE 8. og 9. október 2010 8.9.2010

Ágætu skógareigendur !

 Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda verður haldinn í Reykholti í Borgarfirði   8. og 9. október 2010.

 Kostnaður á mann í tvær nætur í 2ja manna herbergi  með baði er kr. 14.450.-

Innifalið er allur fundarkostnaður, morgunmatur, kaffi, kvöldmatur, hádegismatur, hátíðarkvöldverður og ferð í Skorradal.

Nánari upplýsingar um fundin má finna hér  og daskrá fundarinns hér.

 

Skógarbændur í sumarferð. 10.8.2010

Dagana 3. til 8. ágúst síðastliðinn voru 17 Vestfirskir skógarbændur á ferðalagi um „meginlandið“.  Arnlín Óladóttir skipulagði ferðina sem sambland skemmti og skoðunarferðar um helstu skóga Íslands og misgamla uppvaxandi bændaskóga.
Ferðalýsingu í máli og myndum má finna hér.

 

 

 

 

 

 

 

Sumarlokun Skjólskóga á Vestfjörðum.

 

Frá og með mánudegi 12. júlí til og með þriðjudegi 3. ágúst er skrifstofa Skjólskóga á Þingeyri lokuð vegna sumarleyfa starfsmanna.

 

Erindum sendum á skjolskogar@skjolskogar.is verður svarað eftir föngum og eins má ná sambandi við framkvæmdarstjóra í síma 893-1065 ef mikið liggur við.

 

Sæmundur.

 

Vestfirskum skógfræðingum fjölgar um 300%. 8.6.2010

Við útskriftarathöfn  LBHÍ sl. föstudag gerðist sá merki atburður að 3 vestfirðingar útskrifuðust með Bs gráðu í skógfræði.
Samkvæmt vísindalegum útreikningum starfsfólks skjólskóga fjölgar skógfræðingum á Vestfjörðum við þetta um 300%.

Á myndinni hér að neðan sjást skælbrosandi nýútskrifaðir skógfræðingar. Þau eru frá vinstri talið;
Sighvatur Jón Þórarinsson, skógarbóndi að Höfða í Dýrafirði.
Lilja Magnúsdóttir, skógarbóndi Kvígindisfelli Tálknafirði.
Sæmundur Kr. Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Skjólskóga.

 


Ljósmynd : Áskell Þórisson

Aðalfundaboð 31.05.2010

Aðalfundur Félags skógarbænda á Vestfjörðum verður haldinn á Café Riis á Hólmavík,
sunnudaginn 13. júní kl. 13.00. 
Venjuleg aðalfundarstörf.  Úr stjórn á að ganga Ásvaldur Magnússon,  formaður og gefur
hann ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.     

 Sæmundur Þorvaldsson, skógfræðingur, heldur erindi sem hann kallar,
“grenikvæmi  og skógræktarskilyrði á Vestfjörðum”.

Stjórn Félags skógarbænda á Vestfjörðum.

 

 

Vorið er komið og plönturnar á leiðinni! 14.05.2010

Girðingar:

Sauðburður er kominn á fullt og þá er þurfa menn að rýma til í húsunum. Líklegt er að geldfé og hrútar fari að birtast fljótlega og ekki til setunnar boðið að hysja upp girðingar. Því fyrr því betra svo að blessaðar skjáturnar  fái ekki þá ranghugmynd í kollinn að smáar skógarplöntur séu skepnufóður. Hér er stutt heimildarmynd á engilsaxnesku um virkni rafgirðinga.

Plöntur koma á lager á Höfða föstudaginn 21. maí. Kristján sér svo um að koma þeim á suðurfirðina. Síðan koma plöntur á Strandir og í Reykhólasveit strax í vikunni eftir Hvítasunnu og verða afhentar heim á bæina þar sem bændur sjá um þær sjálfir. Við viljum minna á að plöntulagerinn á Höfða lokar í byrjun júlí og þá þarf gróðursetningu að vera lokið. Þetta gekk yfirleitt mjög vel í fyrra og greinilega betri útkoma á plöntunum ef gróðursett er snemma.

Umhirða skógarplantna

Staðsetning:

Plönturnar þurfa skjólsælan stað þar sem sól skín ekki nema stutta stund dag hvern. Ríflega 2 fermetra þarf fyrir hverjar þúsund plöntur, auk athafnasvæðis. Undirlagið þarf að vera slétt og ágætt að setja plast eða jarðvegsdúk undir þær svo að ræturnar vaxi ekki niður í moldina, svo vatn hripi ekki of hratt niður í jarðveginn og til þess að sóða ekki allt út. Gott er að hafa við höndina agryldúk til að breiða yfir plönturnar ef von er á alvöru næturfrosti.

Meðhöndlun:

Sjá þarf til þess að plönturnar þorni ekki í bökkunum. Best er að vökva mikið og sjaldan frekar en lítið og oft. Athugið að  jaðarinn á stæðunum þornar miklu hraðar en miðjan, svo að best er að vökva handvirkt eftir jaðrinum á milli þess sem öll stæðan er vökvuð. Annars er hætta á moldin verði gegnsósa í miðjunni og ísköld eftir því. Þá hætta ræturnar að vaxa.  Einnig er gott að raða t.d timburborðum meðfram jöðrum svo til að draga úr þornun þeirra.

Á 7- 10 daga fresti þarf að gefa áburð og þá þarf moldin að vera frekar þurr svo að hún drekki í sig áburðarvatnið.  Ef miklir þurrkar eru og oft þarf að vökva, þá skolast áburðarefnin hraðar út og oftar þarf að gefa áburð. Eitt lítið kryddglas af áburði leyst upp í 10-20 lítrum af vatni og gefið á hverjar 1000 plöntur. Gott er að leysa áburðinn upp í aðeins volgu vatni fyrst jafnvel deginum áður og blanda honum svo út í vökvunarvatnið. Síðan þarf að skola aðeins yfir stæðuna á eftir til að tryggja að áburður sitji ekki á laufum eða barri og skemmi þau.

Fyrir gróðursetningu:

Takið til þær plöntur sem þið ætlið að gróðursetja daginn eftir. Þær fá þá samskonar meðferð og hér að ofan – áburðarvatn í nestið og góða vökvun áeftir. Þetta þarf að gera daginn áður svo að þær hafi tíma til að drekka áburðinn í sig áður en þær verða fyrir því áfalli að standa allt í einu aleinar úti í móa. Gera má ráð fyrir að það hægi talsvert á starfseminni svona fyrst í stað og ræturnar þurfa tíma til að jafna sig og vaxa út í jarðveginní kring.

 

Hafið samband við okkur ef þið viljið frekari upplýsingar: Skrifstofa Þingeyri 456 8201, skrifstofa  Bakka 451 3384, Sæmundur 893 1065, Kristján 848 0925, Arnlín 868 4921.

 

 

Taxtar ársins 2010 14.05.2010

Búið er að gefa út taxta ársins 2010. Þá er að finna hér og á hægri spássíu undir liðnum taxtar, girðingataxta er hinsvegar að finna
í  girðingar krækjunni sem er krækjan neðað við taxtakrækjuna og hér.

 

 

Fagráðstefna skógræktar 2010

Árleg fagráðstefna skógræktar 2010 verður að þessu sinni haldin á Hótel Stykkishólmi dagana 24.-26. mars, n.k.  

Skráning á ráðstefnuna fer fram til 15. mars í tölvupóst gudmundur@vestskogar.is eða í síma 433-7054 (Guðmundur Sigurðsson).

Allar upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér.

 

 

Faxtækið skorið niður. 6.10.2009

Faxtækið hrundi. Verður ekki endurnýjað. Faxsímanúmeri skjólskóga hefur verið lokað.
 

Nytjaskógrækt í Önundarfirði 1/9/2009

Í Tröð í Önundarfirði hafa þau bændur, Ásvaldur og Helga, gróðursett myndarlega beitarskóg á holtunum ofan við bæinn. Trén hafa vaxið ágætlega og stutt í að skógurinn geti farið að sinna fyrirhuguðu hlutverki sínu sem skjólgott vorbeitarhólf.  En á dögunum litu fyrstu afurðir skógarins dagsins ljós þegar bændur brugðu sér kvöldstund út í skóg til sveppatínslu og tíndu ríflega 5 kg af lerkisveppum á skammri stundu. Segja má, að beit hafa því hafist í skóginum þó að þar sé um að ræða bændur en ekki sauðfé.
Geta má þess að götuverð á lerkisvepp er um 3.000 kr/kg (blautvigt).

 

Lerkið er orðið 2,70m hátt
 
Uppskeran tilbúin á grillið
 
Fallegir eru þeir

 

Alþjóðleg ráðstefna um líforku

Haldin verður alþjóðleg ráðstefna um líforku, PELLETime symposium, dagana 18. - 20. ágúst nk. í íþróttahúsinu á Hallormsstað á Fljótsdalshéraði.

 Ráðstefnan er hluti af PELLETimeverkefninu sem Héraðs-og Austurlandsskógar ásamt Skógrækt ríkisins á Austurlandi taka þátt í á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (NPP).  Auk þessara aðila á Íslandi taka stofnanir í Skotlandi, Svíþjóð og Finnlandi þátt, Finnar leiða verkefnið.

 Ráðstefnan fjallar um líforku, timbur og skyld efni og hvernig við getum nýtt okkar náttúruauðlindir á ábyrgan hátt.  Ráðstefnan mun fara fram á ensku, en fyrirlesarar eru m.a. frá Íslandi, Noregi, Finnlandi og Svíðþjóð.

 Ráðstefnan hefst á hádegi þann 18. ágúst.  Ráðstefnugjöld eru kr. 5.000 og innifalið í því er ráðstefnan, tveir kvöldverðir og skoðunarferð þann 20. ágúst.

Nemar greiða engin ráðstefnugjöld.

 Óskað er eftir að skráningar berist á netfangið; skogar@heradsskogar.is 

 Væntanlegum þátttakendum er bent á gistimöguleika á Hallormsstað sem finna má á slóðinni:

http://www.graihundurinn.is/  sími: 471-2400

Upplýsingar um ráðstefnuna    og  Dagskrá ráðstefnu

 

Aðalfundur Landsamtaka Skógareigenda

Aðalfundur landsamtaka skógareigenda verður haldin í Stórutjarnarskóla Ljósavatnsskarði 18. og 19. september nk.
Kostnaður á mann í tvær nætur í tveggja manna herbergi með baði er kr 13.000- á mann og tveggja manna herbergi án baðs er kr 11.500.-

Eins manns herbergi með baði er kr 15.500- á mann og án baðs kr 13.500.-.  Innifalið er allur fundarkostnaður, gisting, morgunmatur, kaffi, kvöldmatur, hádegismatur, hátíðarkvöldverður og ferð að Vöglum.

Þátttakendur eru beðnir að tilkynna sig í Stórutjarnarskóla á tölvupóstfangið   oliarn@storutjarnaskoli.is  eða  í síma  464-3220. Tekið er á móti pöntunum frá 1. til 11. september.

Dagskrá og nánari upplýsingar er að finna hér.

 

Lokað vegna sumarfleyfa starfsmanna.

16. júlí – 3. ágúst.

 

Gróðursetningu er lokið þetta sumarið og hefur gangur því verki verið fádæma góður.

Uppgjörum til þeirra sem skiluðu inn framkvæmdaskrám í júní verður lokið 15. júlí og þá gefst færi á að sleppa starfsmönnum í sumarleyfi í nokkrar vikur. 

Skrifstofa Skjólskóga er því lokuð frá og með fimmtudegi 16. júlí til og með mánudegi 3. ágúst næstkomandi. 

Tölvupósti verður svarað eftir því sem aðstæður leyfa og eins má ná sambandi við framkvæmdastjóra í gsm 893-1065 og heimasíma 456-8208 ef þurfa þykir.

Sumarkveðjur,

starfsfólk Skjólskóga á Vestfjörðum

 

 

Nýjar höfuðstöðvar Skjólskóga.

Þá erum við skjólskógarar að verða búnir að koma okkur fyrir í nýju skrifstofuhúsnæði að Aðalstræti 12 á Þingeyri, neðri hæð.
Húsið hýsti hér áður og fyrr pósthús þingeyringa. Ef fólk á leið um stór Dýrafjarðarsvæðið er tilvalið að kíkja við
og jafnvel er  mögulegat að heitt sé á könnunni. 
Eins og sést á myndinni hér að neðan er húsið hið reisulegasta hátt til lofts og vítt til veggja enda veitir ekki af fyrir
stórmennin sem það hýsir.  Þá er gengið inn á skrifstofuna um dyr sem vísa út Dýrafjörð eða á NNV gafli hússins.

 

 

Flutningur höfuðstöðvanna. 9.6.2009

Í dag fer skrifstofa skjólskóga á flakk þ.e. verður flutt í annað húsnæði að Aðalstræti 12 á Þingeyri. Þar sem áður var pósthús þingeyringa.  Af þessum sökum verður skrifstofusími 456-8201 ekki tengdur í dag og netsamband verður úti.
Því er þeim sem nauðsinlega þurfa að ná sambandi bent á farsímann 893-1065. Allt á þetta að verða komið í lag á morgun á nýja staðnum.

 

 

SVEIFLA HAKA OG RÆKTA NÝJAN SKÓG 12.5.2009

Út er kominn bæklingurinn Sveifla haka og rækta nýjan skóg þar sem
kynnta eru framtíðarhorfur og helstu áherslur landshlutaverkefna í
skógrækt Hægt er að skoða bæklinginn á PDF. formati með því að smella
á myndina hér að ofan. Dreifing bæklingsins stendur yfir en einnig er hægt
að nálgast eintök á skrifstofum verkefnanna.

 

Taxtar ársins 2009. 26.3.2009

Búið er að gefa út taxta ársins 2009. Þá er að finna hér og á hægri spássíu undir liðnum taxtar, girðingataxta er hinsvegar að finna
í  girðingar krækjunni sem er krækjan neðað við taxtakrækjuna og hér.

 

Aukið fjármagn til landshlutaverkefnanna í skógrækt 13.3. 2009

Samkvæmt áætlun um aðgerðir í atvinnumálum sem ríkisstjórnin kynnti fyrir skömmu hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ákveðið að veita allt að 30 millj. kr. til landshlutaverkefnanna í skógrækt. Áætlað er að sú upphæð skapi 10 ársverk.
Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir skógarbændur. Þó upphæðin sé ekki há, felst í þessu framlagi viðurkenning á því stóra hlutverki sem landshlutaverkefnin hafa í atvinnu- og auðlindasköpun á landsbyggðinni. Með þessu framlagi verður tryggt að ekki þurfi að henda neinum plöntum sem verkefnin höfðu skuldbundið sig til að kaupa. Eftir sem áður verður rekstur verkefnanna erfiður á þessu ári og allar færar leiðir til sparnaðar verða nýttar.

 

Skjólbeltapistill 19.2.2009

Komin inn stuttur pistill í máli og myndum um skjólbelti, skjólbeltaát,  hvernig beitardýr geta notið þeirra forréttinda að
bíta gras í skjóli. Einnig hvernig skal stunda hina gullnu "meðalbeit" hvenær má beita, hversu mikið og hversu lengi, umhverfis skjólbelti. Pistilinn er að finna undir flipanum ýmsar greinar og einnig er hægt að skoða hann hér.

 

 Skjólbeltabæklingur komin á vefinn. 11.2.2009

Skjólbeltaritið Skjólbelti vörn gega vindi sem gefin var út af Skjólskógum og Rannsóknarstöð skógrækta,
Mógilsá er nú komin á vefinn. Hægt er að krækja sig inná ritið hér á vinstri spássíu og undir lyklinum fræðsluefni.
Ritið, sem á frummálinu heitir Trees against the Wind, var upphaflega gefin út af Pacific Nothwest
Extension Publication árið 2003 og var snúið á íslensku af þeim Magnúsi Rafnssyni og Arnlín Óladóttur árið 2005.
Rétt er að benda á að ritið er skrifað með aðstæður landbúnaðar í Norðvesturríkum BNA í huga og var snarað yfir
á íslensku , án þess að staðfær tegundaheiti eða aðlaga efni hans á annan hátt að íslendskum aðstæðum.
Þá má einnig benda á að enn eru til nokkur eintök af ritinu á skrifstofu Skjólskóga.

 

Almennur fundur skógarbænda á samningssvæði Skjólskóga 21. janúar 2009.

 

Fundargerð

Miðvikudaginn 21.janúar 2009 var haldinn almennur fundur skógarbænda á Vestfjörðum, þ.e. þeirra sem hafa samning við
Skjólskóga. Dagskrá fundarins sneri að niðurskurði sem orðið hefur á fjárveitingum til Skjólskóga og tillögum stjórnar og
starfsmanna um það hvernig beri að bregðast við þeim. Fundurinn var haldinn sem símafundur þannig að sem flestir gætu
mætt til fundarins, óháð veðri og færð. Sæmundur, framkvæmdastjóri hafði áður sent út efni sem hann lagði fyrir fundinn.

 Fundurinn hófst klukkan 20:00 og voru mætt:

Sæmundur, Arnlín og Kristján starfsmenn Skjólskóga, Aðalheiður og Sighvatur á Höfða, Valdimar á Mýrum, Lúðvík á Klukkulandi, Lilja á Kvígindisfelli, Oddný og Barði á Hesti, Björgvin og Sólveig í Innri-Hjarðardal, Torfi á Gileyri, Benedikt á Sandnesi,
Eysteinn á Víðidalsá, Böðvar á Skógum, Björn í Botni/Birkihlíð, og Ásvaldur í Tröð sem jafnframt er stjórnarmaður í Skjólskógum.

 

1.     Sæmundur kynnti tilefni fundarins og fór yfir efnið sem hann hafði áður sent skógarbændum. Glærur þær sem hann lagði
fram eru hér á pdf formi en helstu atriði úr þeim fylgja hér á eftir:

 

Eins og kunnugt er lækka framlög af fjárlögum til Skjólskóga á Vestfjörðum mikið milli áranna 2008 og 2009. 
Fjárlagatillaga í október 2008 hljóðaði upp á 57,6 milljónir króna en niðurstaðan vegna efnahagsástandsins er 46 milljónir. Fjárveiting 2008 var 51,2 miljónir.

 

Niðurskurður verkefna hjá Skjólskógum er eftirfarandi:

 Með þessu næst 11,5 milj. kr. sparnaður en rekstraráætlun 2009 gerir ráð fyrir að fyrir 46 milljónir megi
gróðursetja liðlega 300.000 skógarplöntur (engu hent) og standa við skuldbindingar um stofnframlög
nýgirðinga frá 2006-2008.

Starfsmenn noti árið vel til að framkvæma úttektir á eldri gróðursetningum og endurskoða áætlun um
Skjólskóga til næstu 10 ára.

 Auk þess hefur verið ákveðið:

·       Gróðursetning fari fram í maí-júni 2009, - engin haustgróðursetning

·       Taxtar vegna framkvæmda og girðinga taki ekki vísitöluhækkun frá árinu 2008

·       Taxtar vegna vinnu og viðmiðun girðingakostnaðar verði endurskoðuð og samræmd öðrum landshlutaverkefnum.

·       Nýtt kerfi verði tekið upp við greiðslu girðingakostnaðar sem miði við að greiða hann í hlutfalli við framvindu gróðursetninga í samningssvæði.

2.     Þetta leiðir til þess að skógarbændur þurfa að taka á sig aukin verkefni og hafa ekki sama sveigjanleika varðandi gróðursetningu.
Á þeim svæðum þar sem plöntulagerar verða lagðir niður munu skógarbændur fá allar plöntur heim á hlað í vor og þurfa að hugsa
um þær fram að gróðursetningu. Í því felst að útbúa stað sem hentar, sjá um að leiða þangað vatn og að sjá um áburðargjöf eftir þörfum. Jafnframt þarf að vera á verði fyrir afföllum og óværu hvers konar. Leiðbeiningar um þetta atriði verða útbúnar og sendar
til bænda þegar nær líður.

3.     Auk þess fara Skjólskógar fram á það við  skógarbændur að þeir sætti sig við að ekki verði greiddur viðhaldskostnaður girðinga
árið 2009. Þannig verður niðurskurður hjá öllum skógarbændum, en lendir ekki eingöngu hjá þeim sem eru að hefja starfsemi. Þetta atriði er samningsbundið og var því farið fram á samþykki fundarmanna við þessa ákvörðun. Enginn hreyfði mótmælum, og flestir fundarmenn tjáðu sig sammála þessu fyrirkomulagi. Það var þó tekið fram að ef sérstakar aðstæður, s.s. ísingarvðeur eða snjóþyngsli, verða til þess að girðing skemmist að stórum hluta t.d. 20%, er eftir sem áður hægt að sækja um viðhaldsframlag. Starfsmenn Skjólskóga munu þá, hugsanlega í samvinnu við fulltrúa skógarbænda, taka út skemmdirnar og taka ákvörðun um framhaldið.

4.     Nokkrar umræðu urðu um hvernig best væri að haga framkvæmdum í ár þar sem minni sveigjanleiki er hjá bændum til gróðursetningar. Rætt var um nýja reglugerð félagmálaráðherra sem heimilar fyrirtækjum að ráða til sín starfsmenn tímabundið af atvinnuleysisskrá og greiða einungis hluta af launum þeirra. Í framhaldinu var viðruð sú hugmynd að stofnað verði fyrirtæki sem ráði til sín starfsmenn, þjálfi þá og geri út í gróðursetningar. Þannig mætti sjá til þess að allar plöntur komist í jörðu á góðum tíma með vönduðum vinnubrögðum á viðráðanlegu verði. Og jafnframt að launamennirnir fái viðunandi laun auk þeirrar ótvíræðu upplifunar að  ferðast á milli vestfirskra skógarbænda og vinna í fjölbreyttu umhverfi. Rætt var um að starfsmenn Skjólskóga kynntu sér þessar reglur og aðferðir við að nýta þetta og kynntu skógarbændum við fyrstu hentugleika.

 

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið um klukkan 21

 

            Arnlín Óladóttir, fundarritari.

 

 

 

 

Glærur símafundar. 27.01.2009

Glærur sem sendar voru út vegna símafundar sem haldin var 21.janúar síðastliðin hafa nú verið settar inn á vefinn.
Borið hefur á að skógarbændur hafi ekki geta opnað skjalið sem sent var út á powerpoint formi og eru þær þvi settar hér
á vefinn á PDF formati.  Hægt er að sjá glærurnar hér auk þess sem þær er að finna undir liðnum ýmsar greinar á hægri spássíu.

 

 

Þingeyri 25. janúar 2009.

 Eins og kunnugt er lækka framlög af fjárlögumtil Skjólskóga á Vestfjörðum mikið milli áranna 2008 og 2009. 
Fjárlagatillaga í október 2008 hljóðaði upp á 57,6 milljónir króna en niðurataðan vegna efnahagsástandsins er
46 milljónir. Fjárveiting 2008 var 51,2 miljónir.

 

Niðurskurður verkefna hjá Skjólskógum er eftirfarandi:

 

Með þessu næst 11,5 milj. kr. sparnaður en rekstraráætlun 2009 gerir ráð fyrir að fyrir 46 milljónir megi koma á
sinn stað liðlega 300.000 skógarplöntum (engu hent) og standa við skuldbindingar um stofn-framlög nýgirðinga frá 2006-2008.

Starfsmenn noti árið vel til að framkvæma úttektir á eldri gróðursetningum og endur-skoða áætlun um Skjólskóga til næstu 10 ára.

 

Auk þess hefur verið ákveðið:

Sæmundur Kr. Þorvaldsson.

 

 

 

Dagskrá símafundar í kvöld. 21.01.2009

Símafundur með skógarbændum á Vestfjörðum 21. janúar 2009.
 
1.1. Tilefni fundar
2.2. Rekstur síðasta árs
3.3. Fjárveitingar 2009
4.4. Áætlaðar framkvæmdir og kostnaður
5.5. Niðurskurður í formi minni framkvæmda og annars kostnaðar.
6.6. Niðurskurður á framlögum til bænda
7.7. Aðrar aðgerðir til skoðunnar
 

Upplýsingar um tengingu:

Hvernig farið þið að: 

Þið hringið í fundarsímanúmer:  755-7755,

þá kemur ylþýð rödd sem býður ykkur velkomin til fundar og biður um að
valið sé fundanúmer sem er í þessu tilfelli: 456-8201

 

Kreppufundur með skógarbændum 19.1.2009

Sælt veri fólkið ! 

Eins og fram kom í skeiti frá Skjólskógum skömmu fyrir jól þá voru horfur slæmar vegna
fjárveitinga til Skjólskóga árið 2009.

Nú er ljóst að Skjólskógar fá 46 milj. kr. sléttar til síns reksturs á næsta ári og hefur verið
gert að skera niður áætlanir til samræmis við það. 

Ekki fer hjá því að að svona niðurskurður hafi mikil áhrif á rekstur og ekki síður framlög og
framkvæmdir ársins enda verið að lækka framlög um liðlega 11 milljónir króna frá því sem
gert var ráð fyrir í fjárlagatillögu sem lögð var fyrir Alþingi í október sl. og 5,2 milljónur
frá fjárveitingu 2008. 

Skjólskógar óska hér með eftir fundi með skógarbændum sem hafa samning við Skjólskóga
til að fara yfir stöðuna og ræða hvaða leiðir eru sársaukaminnstar til að bregðast við þessum
aðstæðum. Tilgangurinn er að fá fram afstöðu bænda eða tillögur um hvaða þætti mætti helst
spara eða skera niður í framlögum til bænda.  

Fundur er hér með boðaður með skógarbændum í Holti í Önundarfirði miðvikudaginn 21. janúar næstkomandi. Kl 20:00.

 Þetta er skammur fyrirvari en á þessum árstíma er svo sem einna helst hægt að ákveða svona
nokkuð með skömmum fyrirvara. 

Bændur eru eindregið hvattir til að mæta og til að auðvelda lengra að komnum að sækja fundinn
svo sem Strandamönnum þá bjóðast Skjólskógar til að greiða eldsneytiskostnað við bíl frá t.d.
Hólmavík ef það mætti létta mönnum sporin.  

Auðvitað er ekki hægt að reikna með að bændur úr Reykhólasveit eða Vestur-Barð geti lagt í allt
að 650 km. akstur til að sinna þessu fundarboði en kannað verður hvort hægt verður að halda sérstaka
fundi á þeim svæðum í kring um næstu mánaðarmót, eða þá að ræða við bændur hvern og einn símleiðis.

 Sæmundur Kr. Þorvaldsson.

 

 

 

Eldri Fréttri