Plöntulagerar
Plöntur sóttar á lager
Geymsla og meðferð plantna
Eftir plöntun


Plöntulagerar:                   

Ísafjarðarsýslur:
Höfði Dýrafirði.                    Sighvatur Þórarinsson        456-3042/GSM847-8409              hofdi@snerpa.is

Vestur Barðarstandarsýsla:
Breiðilækur Barðaströnd      Ólöf  S. Pálsdóttir              456-2046                                    finnbkr@snerpa.is

Strandasýsla og Austur Barðastrandarsýsla:
Svanshóll Bjarnarfirði         Hallfríður Sigurðardóttir    451-3377/GSM868-2676               loi-halla@simnet.is

Minnt er á að lagerhaldarar þurfa að vita með fyrirvara hvenær menn vilja sækja plöntur, og þá verður að koma fram
hve mikið af hverri tegund
. Lagerhaldarar eiga að hafa tíma til að taka til þessar plöntur og gefa þeim sérstakan
áburðarskammt svo að þær séu rétt nestaðar fyrir útplöntun. Best er að senda tölvubréf með þessu upplýsingum.

Skógarbónda er bent á að panta skammt sem hentar á ákveðið svæði (reit) og taka ekki meira en hann ræður við með
góðu móti að planta á 2 dögum. Með því móti er tryggt að plönturnar fái besta hugsanlega atlæti þar til þær komast í jörð.

 

Plöntur sóttar á lager:

Áður en plöntur eru sóttar skal hafa samband við lagerstjóra og tilkynna honum hvað af plöntum bóndi ætlar að sækja.
Ágætt að gera það daginn áður þannig að þær séu klárar til afhendingar er bóndi kemur.
Æskilegast er að sækja plöntuskammt fyrir ca. 2 daga, hámark viku, eftir flutnings vegalengd.
Plöntur skal flytja í lokuðu flutningstæki, lokuðum kerrum (hestakerrum) inni í bíl eða hafa yfirbreiðslur á opnar kerrur og palla.
Óvarðar plöntur skrælna í flutningi!
Skjólskjólskógar hafa yfir að ráða togarakössum sem hægt er að nota við plöntuflutning. Einnig er til plöntukerra sem tekur
ca. 5000 plöntur í Fp40 bökkum. Kerran flakkar milli lagera yfir sumarið og geta bændur frétt af henni á skrifstofu Skjólskóga.
 

 


Geymsla og meðferð plantna

Plöntur skal geyma á skýldum og skuggsælum stað með sléttu undirlagi.
Mikilvægt er að fylgjast með að rótarhnaus plantna þorni ekki!
Áður en plöntur eru afgreiddar frá lager fá þær áburð.
Því skal vökvun fyrir gróðursetning vera sem minnst, of mikil vökvun => útvatnaðar plöntur.
Því á ekki að vökva á  hverjum degi, frekar sjaldan og mikið (eins og góð fyllerí).
Svo skal rennbleyta plöntur  fyrir gróðursetningu.

Eftir plöntun

Eftir plöntun skal skógarbóndi fara yfir skráningu, taka saman hvað fór í hvern reit og stemma afhendingarlista frá lager
og framkvæmdskráningu. Afrit af skráningarblöðum vegna gróðursetningar og jarðvinnslu sendist til skjólskóga og skila skal öllum
bökkum á lager.